Körfuknattleiksdeild Þórs

Frábær árangur Þórsara í vetur
Eins og alþjóð veit þá urðu Grindvíkingar Íslandsmeistarar í körfuknattleik í gærkvöldi eftir æsispennandi leik við Þórsara, þar sem sigurinn hefði getað dottið báðum megin. Við viljum óska Grindavík til hamingju með titilinn.

Árangur okkar manna er búinn að vera hreint út sagt magnaður í vetur og ótrúlegt að fylgjast með bæjarfélaginu í úrslitakeppninni þar sem líf allra bæjarbúa hefur nær eingöngu snúist um körfubolta og meira að segja var maður að sjá fólk öskra sig hása uppí stúku sem manni hefði aldrei dottið í hug að myndu mæta á svona íþróttaviðburð. Samheldni bæjarbúa er búinn að vera ótrúleg síðustu vikur og er það virkilega frábært að sjá. Þetta er vonandi eitthvað sem er komið til að vera og verður gaman að sjá fólk fjölmenna svona á völlin á næsta/u tímabilum.

Annað sæti Íslandsmótsins er frábær árangur og hvað þá í ljósi þess að við erum nýliðar í úrvalsdeild og hefur liðið skrifað margar blaðsíður í sögubækurnar fyrir þær sakir. En svona árangur næst fyrst og fremst með frábærum þjálfara, öflugum leikmönnum sem eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar, frábærri stjórn og sjötta manninum, stuðningsmönnunum, sem hafa verið magnaðir í vetur með Græna drekann fremstan í flokki.

Áfram Þór!

Náðu í söngbók Græna drekans
Eins og allir vita unnu okkar menn frábæran sigur á Grindavík í gærkvöldi og staðan því 2-1 og allt getur gerst.

Græni drekinn hefur sett niður á blað söngvana sem þeir syngja á leikjum Þórs og núna getur þú sótt söngvana, með því að vista wordskjalið sem fylgir hér að neðan.

Núna getur öll stúkan sungið með í stúkunni á miðvikudaginn þegar Grindvíkingar mæta í Þorlákshöfn í leik fjögur.

Söngbók Græna Drekans

Þriðji leikurinn í kvöld í Grindavík
Þá er komið að leik 3 í úrslitaviðureign Þórsara og Grindavíkur. Leikurinn verður í Röstinni í Grindavík í kvöld kl. 19.15.

Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Grindavík og verða okkar menn að vinna í kvöld ef þeir ætla að koma í veg fyrir að Grindavík hampi íslandsmeistaratitlinum að leik loknum.

Nú þurfa Þorlákshafnarbúar að fjölmenna á pallana í Röstinni og hvetja strákana til sigurs!

Leikur 2 í kvöld kl. 19.15
Í kvöld fer fram önnur úrslitaviðureign Þórs og Grindavíkur í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Leikurinn hefst kl. 19.15 og verður í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.

Grindavík leiðir 1-0 eftir mikla spennu í lokin í Grindavík. Okkar menn þurfa virkilega á sigri að halda í kvöld til að jafna einvígið í 1-1. Í úrslitum þarf að vinna 3 leiki, eins og í undanúrslitunum.

Það verður grill fyrir leik og hefst það kl. 18.00. Núna verða allir bæjarbúar og aðrir sunnlendingar að fylla höllina og styðja strákana til sigurs.

Áfram Þór!

Grindavík leiðir 1-0
Gulir grimmari í lokin – allur pakkinn í Röstinni!

Deildarmeistarar Grindavíkur tóku í kvöld 1-0 forystu gegn Þór Þorlákshöfn í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Þessi fyrsti leikur liðanna bauð upp á allan pakkann, glæsileg tilþrif, hraða og fyrst og fremst mikla spennu. Fullkomið veganesti inn í framhaldið. Lokatölur í Röstinni voru 93-89 Grindavík í vil þar sem Þór barði sig upp að hlið heimamanna eftir að hafa misst þá framúr sér en Grindvíkingar voru ólseigir á lokasprettinum og lönduðu sigri. J´Nathan Bullock gerði 29 stig og tók 9 fráköst fyrir gula í kvöld en hjá Þór voru þeir Blagoj Janev og Darrin Govens báðir með 17 stig.

Fyrir leik í kvöld fékk Teitur Örlygsson þakklætisvott frá Grindvíkingum, forláta blómvönd og knús frá Ólafi Ólafssyni eftir viðskipti þeirra félaga í Ásgarði. Lesa um það mál hér.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson gaf tóninn í fyrsta leikhluta með skrímslatroðslu í traffík og eftir það var ekki aftur snúið. Stigunum hreinlega rigndi og tvö varnarsinnuð lið enduðu á því að gera samtals 55 stig í þessum fyrsta leikhluta og Grindvíkingar brenndu ekki af skoti fyrstu 16 stigin sín í leiknum. Benedikt Guðmundsson tók leikhlé fyrir Þór þegar Grindvíkingar komust í 16-6 en svellkaldir gestirnir úr Þorlákshöfn skelltu niður fjórum þristum í röð og jöfnuðu leikinn í 18-18. Hlutirnir gerðust hratt, Grindvíkingar slitu sig þó frá og leiddu 29-26 að loknum fyrsta leikhluta með þriggja stiga körfu frá Jóhanni Árna.

Grindavíkurvörnin tók til starfa í öðrum leikhluta og gestirnir skoruðu ekki stig fyrstu þrjár mínútur leikhlutans og heimamenn komust í 33-26 fyrir vikið. Þór var 4 af 8 í þriggja stiga eftir fyrsta leikhluta en 6 af 20 í hálfleik og því fóru 2 af 12 niður í öðrum leikhluta á meðan Grindvíkingar, leiddir áfram af Watson, Bullock og Jóhanni, juku muninn jafnt og þétt. Í stöðunni 37-37 fór Grindavík af stað og hnoðaði í 13-3 syrpu og leiddu svo 56-44 í hálfleik.

Giordan Watson var með 14 stig og J´Nathan Bullock 13 stig í hálfleik hjá Grindavík en í liði Þórs var Darrin Govens með 12 stig og þeir Jospeh Henley og Darri Hilmarsson 7.

Skotnýting liðanna í hálfleik:

Grindavík: Tveggja 56,2%, þriggja 83,3% og víti 55,5%

Þór Þorlákshöfn: Tveggja 50%, þriggja 30% og víti 100%

Bullock opnaði þriðja leikhluta fyrir Grindavík með þriggja stiga körfu og staðan 59-44 fyrir heimamenn í gulu. Grindvíkingar fóru reyndar í 7-2 dembu og Þórsarar skiptu yfir í svæðisvörn. Hægt og bítandi tókst gestunum að hægja á heimamönnum en að sama skapi voru þeir lítið að uppskera í sóknarleiknum uns Blagoj Janev henti niður tveimur þristum í röð og minnkaði muninn í 66-59. J´Nathan Bullock bauð svo upp á tilþrif leiksins á hinum enda vallarins er hann fór inn endalínuna og tróð að tröllasið með látum. Þorleifur Ólafsson lokaði svo leikhlutanum með þrist fyrir Grindavík sem leiddu 75-65 fyrir fjórða og síðasta leikhluta en Þór vann þriðja leikhluta 19-21.

Stigin komu á færibandi í upphafi fjórða leikhluta og gestirnir í Þór ætluðu ekki að láta stinga sig af heldur minnkuðu muninn í 86-80 þegar fjórði var hálfnaður. Baldur Þór Ragnarsson ,,Dirkaði” sig í gang með stökkskoti af öðrum fæti úr jafnvægi, eitthvað sem Dirk Nowitzki hefur gert að listgrein. Baldur minnkaði þá muninn í 86-84 og um þrjár mínútur til leiksloka.

Þórsarar héldu sig við svæðisvörnina, hún hægði á gulum enda gerðu þeir 56 stig í fyrri hálfleik gegn maður á mann vörn Þórs en aðeins 37 stig í síðari hálfleik.

Tveir stórustráka þristar komu frá Bullock og Guðmundi Jónssyni og staðan 91-89 fyrir Grindavík. Henley fékk dæmda á sig sóknarvillu þegar mínúta var til leiksloka og næsta Grindavíkursókn vildi ekki niður. Guðmundur Jónsson reyndi þrist þegar 11 sekúndur voru til leiksloka og hann vildi heldur ekki niður. Bullock tók þá svakalega stórt varnarfrákast og Þór varð að brjóta, skotrétturinn var ekki kominn og því urðu Þórsarar að brjóta á ný og þá á Jóhanni Árna. Jóhann fékk tvö víti sem vildu ekki niður en gestirnir stigu ekki nægilega vel út og eftir boltabaráttu í frákastinu var Grindavík dæmdur boltinn. Þór braut strax á Bullock sem setti niður bæði vítin og gerði þar með síðstu stig leiksins.

Bráðfjörugur þessi fyrsti leikur liðanna, tilþrifin komu á færibandi og mun meira skorað en margir gerðu ráð fyrir enda tvö sterkustu varnarlið landsins að mætast í þessu úrslitaeinvígi. Stuðningsmenn Grindavíkur létu Græna drekann hafa vel fyrir hlutunum í kvöld og væri ekki ósanngjarnt að segja að sigur hafi unnist hjá gulum bæði á parketinu og í stúkunni. Ryan Pettinella kom með sterkar rispur hjá heimamönnum og Grindavík átti frákastabaráttuna 42-33. Bullock reyndist besti maðurinn hjá Grindavík með 29 stig og 9 fráköst en þeir Watson og Jóhann Árni lögðu einnig myndarlega í púkkið og þeir Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Þorleifur létu einnig vel til sín taka. Govens og Janev fóru fyrir Þór í kvöld, báðir með 17 stig og þeir Henley og Guðmundur gerðu báðir 15.

Það ætti enginn að láta sig vanta í Icelandic Glacial Höllina næsta fimmtudag þegar liðin mætast öðru sinni enda var stemmningin mögnuð í Röstinni í kvöld og ljóst að stórbrotið einvígi er framundan.

Heildarskor:

Grindavík: J’Nathan Bullock 29/9 fráköst, Giordan Watson 16/4 fráköst/13 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 14, Þorleifur Ólafsson 12, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 10/6 fráköst, Ryan Pettinella 8/6 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 4/4 fráköst, Einar Ómar Eyjólfsson 0, Þorsteinn Finnbogason 0, Ómar Örn Sævarsson 0, Björn Steinar Brynjólfsson 0, Ármann Vilbergsson 0.

Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 17/7 fráköst/8 stoðsendingar, Blagoj Janev 17/4 fráköst, Joseph Henley 15/9 fráköst, Guðmundur Jónsson 15, Grétar Ingi Erlendsson 11, Darri Hilmarsson 9/5 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 5/6 stoðsendingar, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0, Vilhjálmur Atli Björnsson 0, Erlendur Ágúst Stefánsson 0, Emil Karel Einarsson 0, Þorsteinn Már Ragnarsson 0.

Skotnýting liðanna í leiknum:

Grindavík: Tveggja 54,7%, þriggja 50% og víti 53,5%

Þór Þorlákshöfn: Tveggja 50%, þriggja 37,1% og víti 75%

Mynd og umfjöllun/ nonni@karfan.is

Forsala á fyrsta leik á morgun kl. 14
Eins og allir vita þá eru okkar menn í Þór komnir í úrslitarimmuna við Grindavík í Iceland Express deildinni í körfubolta.

Forsala á fyrsta leikinn verður í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn á morgun (sunnudag) frá kl. 14 en leikurinn verður á mánudaginn í Grindavík kl. 19.15 og er því tilvalið tækifæri að notfæra sér nýja flotta suðurstrandarveginn og skella sér í Grindavík og hvetja áfram okkar menn.

Þeir sem ætla að skella sér á leikinn eru hvattir til þess að versla sér miða í forsölunni.

Þór í úrslit eftir dramatískan sigur á KR
Þór og KR háðu fjórðu viðureign sína í gærkvöldi í 4.liða úrslitum Iceland Expressdeildarinnar. Leikurinn var í járnum strax frá fyrstu mínútu og ljóst að Íslandsmeistarar KR ætluðu ekki að gefa neitt. Þeir sóttu mun meira inn á stóru mennina en í leik 2 og 3 og voru Ferguson og Finnur að draga vagninn fyrir þá í fyrri hálfleik. Þórsarar voru einnig mjög einbeittir enda myndi sigur skila þeim í úrslit. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 19-18.

Sama spennan hélt áfram leikmenn KR voru að hitta betur fyrir utan 3ja stiga línuna en Þórsarar gáfu ekkert eftir og leiddu í hálfleik 46-45.  Þórsarar fundu ekki sama varnartakt í fyrrihálfleik og þeir hafa sýnt í undanförnum leikjum.

3.leikhluti byrjaði vel fyrir heimamenn sem fengu gríðarlegan stuðning úr troðfullri stúkunni. Hrafn þjálfari tók leikhlé þegar að staðan var orðin 55-47, eftir það var allt í járnum og staðan fyrir lokaleikhlutann 69-66 fyrir Þór.

Í 4.leikhluta fóru Þórsarar að sýna sitt rétta andlit í vörninni og voru lokamínúturnar ekki fyrir viðkvæma, Josep Henley kom Þór yfir 82-80 eftir stoðsendingu frá Darrin Govens. Dæmd var sóknarvilla á Ferguson í næstu sókn KR sem að urðu því að brjóta á Þórsurum, Guðmundur Jónsson fór á vítalínuna og setti fyrra vítið niður en klikkaði á því seinna. KR fengu tvo sjénsa á 3ja stiga skotum í lokin en hittu ekki og Þórssigur staðreynd.

Hreint út sagt glæsilegur árangur hjá Benna og strákunum sem eiga þetta svo sannarlega skilið eftir að hafa lagt gríðarlega mikið á sig í vetur. Nú er bara að bíða og sjá hvort að við mætum Grindavík eða Stjörnunni og undirbúa sig undir það, því að strákarnir eru langt í frá saddir.

Stuðningur bæjarbúa í kvöld sem að fylltu Icelandic Glacial höllina var frábær og fleitti liðinu klárlega yfir erfiðustu hjallana í leiknum.

Darrin Govens: 22 stig/10 stoðs/ 8 frák/ 6 stolnir: Þessi drengur er hreint út sagt búinn að vera frábær í þessum leikjum gegn KR og leikurinn í gær var engin undantekning. Frábær sóknarlega og er farinn að finna leikmennina í kring um sig mun betur en áður.

Guðmundur Jónsson: 16 stig/ 3 frák: Gummi nýtti öll trikkin úr reynslubankanum í kvöld og skilaði frábærum leik og var virkilega góður í öllum leikjunum gegn KR.

Joseph Henley: 16 stig/ 11 frák: Besti leikur Joey hingað til, frákastaði vel og er að ruslast vel við körfuna, þekkir sín takmörk og er ekki að taka neitt frá liðinu.

Grétar Ingi Erlendsson: 12 stig/ 3 stolnir: Mjög flottur leikur hjá Grétari, var óheppinn með villur og hefði skorað mun meira ef ekki hefði komið til þess. Var kominn í mikinn ham sóknarlega þegar að hann villaði út. Flott sería að baki hjá honum gegn KR og er kominn með mikið sjálfstraust.

Blagoj Janev: 8 stig / 8 frák: Flottur leikur hjá Blagoj, hefur oft skorað meira en var gríðarlega sterkur í vörninni, hvort sem var á sinn mann eða í hjálparvörn. Var mjög góður í allri seríunni.

Darri Hilmarsson: 7 stig/ 3 stoðs:  Mjög góður í kvöld og er búinn að vera magnaður gegn sínum gömlu félögum úr KR.

Baldur”Fjall” Ragnarsson: Kom inn með mikla baráttu eins og alltaf og spilaði massavörn.

Frábær sería að baki gegn ríkjandi Íslandsmeisturum og bara taumlaust skemmtun framundan.

Dómarar leiksins voru þeir Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson, mjög erfiður leikur að dæma fyrir þá og komust þeir vel frá því þó að ekki hafi allir skilið suma dómana, enda mikill hiti í leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum því að vissulega var mikið undir í þessum leik.

Þór í þúsund ár.

Mynd: Hjalti Vignis

Þórsmaskínan valtaði aftur yfir KR
Þór Þorlákshöfn burstaði KR í kvöld 86-100 í DHL-Höllinni og tóku 2-1 forystu í einvíginu. Gestirnir tóku frumkvæðið snemma og litu aldrei um öxl. Þórsarar urðu í leik tvö fyrstu nýliðarnir til að vinna leik í undanúrslitum, í kvöld urðu þeir svo fyrstir til að vinna tvo leiki og með hverjum sigrinum rita þeir nýja blaðsíðu í annað bindi bókarinnar ,,Leikni framar líkamsburðum” sem vonandi kemur einhvern tíma út. Darrin Govens og Darri Hilmarsson fóru fyrir Þór í kvöld, aðrir léku ljómandi vel en hjá KR skoraði Josh Brown mest en sé rýnt í tölurnar hans að frátalinni vítahittninni (13 af 13) þá tók hann alltof mikið til sín. Martin Hermannsson og Jón Orri Kristjánsson fá klapp á bakið fyrir fína baráttu, aðrir röndóttir þurfa að gyrða í brók.

Heimamenn í KR freistuðu þess að keyra upp hraðann í byrjun leiks en það gaf ekki sem skyldi, Govens með þrist, Guðmundur fylgdi í kjölfarið og ekki löngu síðar tók Hrafn leikhlé fyrir KR í stöðunni 4-13 fyrir Þór. Óskabyrjun hjá gestunum sem léku magnaða vörn en heimamenn fundu þó nokkrar glufur og staðan 15-23 fyrir Þór að loknum fyrsta leikhluta. Blagoj Janev var með sjö stig hjá Þór eftir fyrsta leikhluta en þeir Finnur, Brown og Hreggviður voru allir með fjögur stig hjá KR þar sem Hreggviður kom ferskur inn af bekknum og var strax ógnandi.

Þór opnaði annan leikhluta 4-0 og komust í 21-35 þegar KR-ingar tóku leikhlé. Rob Ferguson fékk skömmu síðar sína þriðju villu í liði KR en hann komst lítið í takt við leikinn í fyrri hálfleik. Darri Hilmarsson fór mikinn fyrir Þór í fyrri hálfleik, vinnslan á manninum er með ólíkindum á báðum endum vallarins! Down Town Brown átti svo lokaorðið fyrir KR í fyrri hálfleik með flautuþrist sem var nærri miðju en þriggja stiga línunni og liðin gengu til búningsherbergja í stöðunni 40-50 Þór í vil. Heimamenn í KR að fá á sig 50 stig í hálfleik á heimavelli, sjaldgæf sjón það.

Brown var með 16 stig og 3 stoðsendingar hjá KR í hálfleik en Darrin Govens 13 stig og 8 fráköst hjá Þór, ekki amalegt hjá leikstjórnandanum. Það var þó Darri Hilmarsson sem bar af í fyrri hálfleik með 9 stig og 4 fráköst og almenn dólgslæti á báðum endum vallarins og ljóst að kappinn er að finna sig afar vel gegn uppeldisfélaginu þessa seríuna.

Skotnýting liðanna í fyrri hálfleik

KR: Tveggja 37,9%, þriggja 33,3% og víti 92,3%

Þór Þorlákshöfn: Tveggja 59%, þriggja 33,3% og víti 64,2%

KR-ingar opnuðu þriðja leikhluta 4-0 en misstu síðar Rob Ferguson af velli með fimm villur. Darrin Govens hélt uppteknum hætti með glimrandi leik, tveir þristar frá kappanum breyttu stöðunni í 46-59 fyrir Þór. Leikhlutinn var þó engu að síður nokkuð jafn á stigum, þ.e.a.s. Þór vann leikhlutann 26-30 þar sem mikið var skorað og þessi leikhluti bauð upp á sísta varnarleikinn í leiknum. Þór leiddi því 66-80 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og ekkert sem benti til þess að KR væri að herða róðurinn, liðsmenn röndóttra einfaldlega andlausir á parketinu ef frá er talinn Martin Hermannsson. Brown var að erfiða, takandi erfið skot og nýtingin hrapaði enda var hann 6 af 15 í teignum eftir 30 mínútna leik.

Baldur Þór Ragnarsson átti lipra spretti með Þór í kvöld, hann gerði fyrstu stig Þórs í fjórða en fékk skömmu síðar sína fimmtu villu og var ekki einn um það en alls fimm leikmenn fengu fimm villur í kvöld, mikið flautað og hart barist.

KR minnkaði muninn í 10 stig, 72-82 en þá tók Guðmundur Jónsson til sinna ráða, þristur og svo karfa í teignum, 5 stig í röð frá Guðmundi og alls 7-0 demba frá Þór og staðan 72-89. Þarna kláraðist leikurinn og rúmar fimm mínútur eftir af leiktímanum. KR átti sér ekki viðreisnar von og þurfa nú að halda í Þorlákshöfn og vinna til að knýja fram oddaleik í DHL-Höllinni.

Í kvöld var það svo viðeigandi að Darri Hilmarsson skyldi gera síðustu stig leiksins úr þriggja stiga körfu, 86-100 og gestirnir með Græna drekann í broddi fylkingar fögnuðu innilega í leikslok.

Þórsarar létu rigna í kvöld, skutu 28 þristum og 11 rötuðu rétta leið á meðan 3 af 16 fóru niður hjá KR. Grænir voru með 43% þriggja stiga nýtingu í leik tvö og 39,2% í kvöld og reyndar 41% nýtingu í leik eitt. Að sama skapi hefur þriggja stiga nýting KR hrapað frá fyrsta leik úr 30% í 26% og svo í kvöld í 18,7%.

Fjórði leikur liðanna fer svo fram í Þorlákshöfn miðvikudaginn 18. apríl næstkomandi.

Heildarskor:

KR: Joshua Brown 34/5 fráköst, Dejan Sencanski 13/7 fráköst, Hreggviður Magnússon 11/4 fráköst, Finnur Atli Magnusson 11/14 fráköst/4 varin skot, Jón Orri Kristjánsson 6/4 fráköst, Martin Hermannsson 5, Emil Þór Jóhannsson 4, Robert Lavon Ferguson 2/4 fráköst, Kristófer Acox 0, Páll Fannar Helgason 0, Skarphéðinn Freyr Ingason 0, Ágúst Angantýsson 0.

Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 29/13 fráköst/9 stoðsendingar, Blagoj Janev 18, Guðmundur Jónsson 16, Darri Hilmarsson 14/9 fráköst, Joseph Henley 12/6 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 6, Grétar Ingi Erlendsson 4, Þorsteinn Már Ragnarsson 1, Vilhjálmur Atli Björnsson 0, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0, Erlendur Ágúst Stefánsson 0, Emil Karel Einarsson 0.

Skotnýting liðanna í leiknum:

KR: Tveggja 42,3%, þriggja 18,7% og víti 96,4%

Þór Þorlákshöfn: Tveggja 57,8%, þriggja 39,2% og víti 67,6%

Dómarar leiksins: Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson

Umfjöllun og mynd/ Jón Björn Ólafsson – nonni@karfan.is

KR – ÞÓR í kvöld kl. 19.15
Jæja, þá er komið að leik 3 í undanúrslitarimmu KR og Þór. Leikurinn verður spilaður í Vesturbænum í kvöld klukkan 19.15. Staðan í einvíginu er 1-1 og getur allt gerst. Til að komast áfram í úrslitin þarf að vinna 3 leiki en okkar menn verða að ná einum útisigri í seríunni til að það gangi eftir, því er leikurinn í kvöld mjög mikilvægur.

Græni drekinn sem frumsýndur verður í kvöld.

Búast má við KR-ingunum band brjáluðum í kvöld eftir tapleikinn á fimmtudaginn í Þorlákshöfn og má reikna með miklum baráttu leik. Fyllum DHL höllina af Þorlákshafnarbúum og látum vel í okkur heyra með Græna drekanum, en til gamans má geta þess að Græni drekinn hefur eignast lukkudýr sem er að sjálfsögðu vígalegur dreki og verður hann frumsýndur á leiknum í kvöld.

Þór-Kr í Drekabælinu umfjöllun
Síðastliðið föstudagskvöld mættust Þór og KR í öðrum leik  liðanna, Kr leiddi einvígið og því ljóst að Þór myndi taka á því í Drekabælinu þetta kvöld. En enginn átti von á því sem koma skildi, nema kannski Benedikt Guðmundsson, sem veit sýnu viti þegar að kemur að körfubolta.

Leikurinn fór rólega af stað liðin voru ekki að setja skotin sín, eflaust stress í báðum liðum, en þó átti Þór frumkvæðið og setti Blagoj

Janev niður sniðskot. Darrin Govens setti niður 3 þrista og Gummi einn,  Þórsarar virkuðu öruggir í  sínum aðgerðum og unnu fyrsta leikhluta 24:12

Ég leyfi mér að segja það að senuþjófurinn í öðrum leikhluta hafi verið nýji maðurinn Joseph Henley, eða Joey eins og hann er kallaður.  Hann reif niður fráköst og var grjótharður í teignum, þó hann hafi að vísu ekki sett öll sín skot, þá fóru öll vítin hans í

leiknum rétta leið.  Vörnin hjá Þórsurum var rosaleg og Kr átti engin svör, sem skilaði sér á töfluna og hálfleikstölur

voru 73:51!

Benedikt hefur eflaust lesið yfir sínum mönnum í hálfleik þrátt fyrir þægilega stöðu í leiknum, því þeir slökuðu ekki á, heldur bættu í. Góð vörn skilaði sér, menn duglegir í hjálpar vörninni og að stíga manninn sinn út, enda náðu Finnur og félagar nánast ekki frákasti af Grétari og Joey undir körfunni.

Þór náði mest 29 stiga forskoti sem verður að teljast frábær árangur gegn Íslandsmeisturnum!

Í byrjun fjórða leikhluta vissi maður nánast að sigur okkar manna væri í höfn, þrátt fyrir að auðvitað geti allt gerst í körfubolta.

Kringar virtust andlausir og langt frá því að nenna að leggja neitt á sig til að vinna þennan leik. Meðan að okkar menn mættu einbeittir og samstilltir, og með dyggum stuðningi úr stúkunni, sem var troðfull tókst þeim að vinna stór sigur á Kr 94-76.

Darrin Govens setti 30 stig, gaf  5 stoðsendingar og reif 5 fráköst og var algjörlega frábær í þessum leik, þó að frábær sé eflaust ekki nógu sterkt lýsingar orð, sóknarlega var hann óstöðvandi, hann hefur sýnt það í vetur að ef hann keyrir að körfunni er hann banvænn, og öll vitum við að hann er frábær skytta en sum skotin sem hann setti í leiknum voru ekki af þessum heimi.

Gummi Jóns setti 17 stig ásamt því að spila sína grjóthörðuvörn, ekki myndi ég vilja mæta þessum manni í körfubolta, maðurinn virðist bara ekki eiga slæman leik.

Blagoj Janev setti 14 stig og tók 7 fráköst og skilaði sínu mjög vel í leiknum, gaman að sjá hvað hann hefur eflst inni í teig, orðinn alveg grjótharður, og frábær skytta sem klikkar varla úr skoti

Baldur Þór átti góðan leik setti 2 stig og gaf 7 stoðsendingar, gaman var að fylgjast með Baldri og Darrin í leiknum, þegar að Kr spilaði pressuvörn, áttu Kringar ekki séns í þá, enda báðir gífurlega hraðir og öruggir með boltann.

Darri Hilmarsson setti 14 og gaf 4 stoðsendingar, Darri er grjótharður leikmaður sem sýndi fyrrum liðsfélögum sínum enga miskunn, Darri er gríðarlega dýrmætur leikmaður, hann er vinnuhestur sem skilar alltaf sínu.

Grétar Ingi setti 4 stig og tók 9 fráköst, skilaði sínu mjög vel og virkilega gott að hann hafi náð sér af meiðslunum fyrir úrslitakeppnina, enda feikiöflugur leikmaður.

Joseph Henley lenti klukkan 17 á leikdag, og Junior kenndi honum kerfin á leiðinni heim. Því myndi ég segja að 13 stig og 6 fráköst væru mjög góður árangur í leiknum. Hann þekkti eiginlega liðsfélaga sinna lítið, en skilaði sínu vel, mér virðist við fyrstu sýn sem hann sé klár leikmaður sem geri ekki mikið af mistökum. Vinnuhestur sem hægt er að stóla á, hann kemur til með að fylla skarð Junior, en það verða þó að teljast vonbrigði vetrarins að geta ekki notað Junior meira í vetur vegna meiðsla.

Þór í þúsund ár

Rúnar Gunnarsson